Fréttir

mynd

15 kílómetrar af hjólastígum tilbúnir

Uppbygging stofnhjólanets höfuðborgarsvæðisins hefur gengið vel undanfarin ár. Frá árinu 2020 hafa verið lagðir rúmlega 15 kílómetrar af hjólastígum og um 15 kílómetrar af göngustígum með fjármagni samgöngusáttmálans. Á árinu 2026 bættust við um þrír kílómetrar af hjólastígum og sambærileg lengd göngustíga. Fjölmargar framkvæmdir eru jafnframt í gangi víðs vegar um höfuðborgarsvæðið.

Við uppbyggingu stofnhjólanetsins er lögð áhersla á vandaða hönnun, breiða stíga, góðar sjónlengdir og öruggar þveranir. Markmiðið er jafnframt að aðskilja umferð gangandi og hjólandi vegfarenda þar sem því verður við komið, þannig að báðir hópar fái öruggara og betra samgöngukerfi.

Frá árinu 2020 hafa, auk stíganna, verið byggð þrenn undirgöng og fimm brýr fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur.

 

Þremur stórum stígaframkvæmdum lokið á árinu

 

Á árinu 2026 lauk framkvæmdum við þrjár mikilvægar tengingar í stofnhjólanetinu. Samtals bættust við um þrír kílómetrar af hjólastígum og sambærileg lengd göngustíga ásamt nýrri brú yfir Arnarneslæk.

 

Skógarhlíð í Reykjavík: Í sumar lauk framkvæmdum við um 600 metra langan tvístefnu hjólastíg meðfram Skógarhlíð, frá Skógarhlíð 2 að undirgöngum við Litluhlíð. Samhliða var lagður nýr göngustígur og þveranir endurbættar með upphækkunum og bættri lýsingu.

Með framkvæmdunum er nú komin samfelld tenging aðskildra göngu- og hjólastíga meðfram Bústaðavegi. Um er að ræða mikilvægan áfanga í uppbyggingu öruggra og greiðfærra samgönguleiða á svæðinu.

 

Fjarðarhraun í Garðabæ og Hafnarfirði: Nýr, um 900 metra langur tvístefnu hjólastígur var tekinn í notkun í sumar. Stígurinn liggur frá gatnamótum Fjarðarhrauns og Hafnarfjarðarvegar að Kaplakrika í Hafnarfirði.

Samhliða voru göngu- og hjólaþveranir við Hólshraun, Bæjarhraun og Flatahraun endurbættar og nýr göngustígur lagður á hluta leiðarinnar. Framkvæmdirnar bæta tengingar milli Garðabæjar og Hafnarfjarðar og auka öryggi vegfarenda.

 

 

 

Sjávargrund, Arnarneslækur og Arnarneshæð: Í nóvember lauk umfangsmiklum framkvæmdum við nýja göngu- og hjólastíga frá Sjávargrund í Garðabæ, meðfram Hafnarfjarðarvegi og upp Arnarneshæð að sveitarfélagsmörkum Kópavogs.

Lagðir voru rúmlega 1.400 metrar af hjólastígum og jafnlöng leið fyrir gangandi vegfarendur. Þá var ný brú byggð yfir Arnarneslæk fyrir hjólandi vegfarendur en eldri brúin nýtist áfram gangandi.

 

 

Uppbygging heldur áfram af krafti

Framkvæmdir við stofnhjólanetið eru nú í fullum gangi víðs vegar um höfuðborgarsvæðið. Unnið er að uppbyggingu um 7,6 kílómetra af hjólastígum ásamt þremur brúm og tvennum undirgöngum.

 

Ásahverfi í Hafnarfirði: Uppbyggingu aðskildra göngu- og hjólastíga meðfram Hafnarfjarðarvegi, frá Álftanesvegi að göngubrú við Breiðás, er að mestu lokið. Með breyttri legu stíganna við göngubrúna verður leiðin beinni og greiðfærari. Einungis er eftir að ljúka yfirborðsmerkingum.

 

Við Voginn í Kópavogi : Við Voginn er unnið að uppbyggingu aðskildra göngu- og hjólastíga frá sveitarfélagsmörkum Garðabæjar að Kópavogstúni.

Núverandi brú verður nýtt fyrir hjólandi vegfarendur og ný göngubrú reist við hlið hennar. Jafnframt verða vegrið endurnýjuð, slettuvörn sett upp á hluta vegriðisins og hljóðvarnir útfærðar meðfram stígunum.

Áætlað er að framkvæmdum ljúki vorið 2027.

 

Hamraborg–Háborg í Kópavogi : Unnið er að endurgerð götunnar þar sem nýir einstefnu hjólastígar verða lagðir og þveranir útfærðar með upphækkunum til að auka umferðaröryggi.

Stefnt er að verklokum í febrúar 2027 og að sambærilegar framkvæmdir hefjist meðfram Ásbraut síðar árið 2027.

 

 

Arnarnesvegur: Nýlega var opnað fyrir bílaumferð um nýjan Arnarnesveg milli Kópavogs og Reykjavíkur. Samhliða vegagerðinni hafa verið byggðir nýir göngu- og hjólastígar, tvenn undirgöng og brú fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur yfir Arnarnesveg.

Vinna við stígana er á lokametrunum og stefnt er að því að þeim ljúki fyrir árslok 2026.

 

Fossvogsbrú: Framkvæmdir við Fossvogsbrú, sem hlotið hefur nafnið Alda, standa yfir. Brúin mun tengja Reykjavík og Kópavog og verður ætluð almenningssamgöngum, gangandi og hjólandi vegfarendum.

Á brúnni verða aðskildir göngu- og hjólastígar sem skapa nýja og mikilvæga samgöngutengingu yfir Fossvog. Áætlað er að framkvæmdum ljúki sumarið 2028.

 

Nauthólsvegur í Reykjavík: Við Nauthólsveg standa yfir framkvæmdir við uppbyggingu innviða fyrir Borgarlínu. Samhliða verða lagðir nýir einstefnu hjólastígar beggja vegna götunnar ásamt göngustígum.

Sérakreinum fyrir almenningssamgöngur verður komið fyrir í miðju götunnar. Framkvæmdirnar eru mikilvægur liður í að bæta aðstæður allra ferðamáta á svæðinu og er áætlað að þeim ljúki sumarið 2028.