Fréttir

betri_samgongur_arsfundur_2022-14

Aðalfundur 2023

Aðalfundur Betri samgangna ohf. árið 2023, vegna starfsársins 2022, verður haldinn miðvikudaginn 19. apríl 2023, kl. 16:00, á Vox Club á Hilton Reykjavík Nordica hóteli, Suðurlandsbraut 2, 108 Reykjavík.

 

Dagskrá fundarins er svohljóðandi, sbr. 12. gr. samþykkta félagsins:
1. Skýrsla stjórnar um starfsemi félagsins á liðnu starfsári.
2. Ársreikningur fyrir liðið starfsár ásamt athugasemdum endurskoðanda félagsins lagður fram til samþykktar.
3. Ákvörðun um hvernig fara skal með hagnað, sbr. ákvæði hluthafasamkomulags, eða tap og framlög í varasjóð.
4. Starfskjarastefna stjórnar lögð fram til staðfestingar.
5. Ákvörðun um greiðslur til stjórnarmanna og endurskoðanda.
6. Kosning stjórnar félagsins.
7. Kosning endurskoðanda félagsins.
8. Önnur mál löglega upp borin.

 

Aðalfundurinn er opinn öllum hluthöfum félagsins, ásamt öllum kjörnum fulltrúum hluthafa félagsins, þ.e. bæði þingmönnum og sveitarstjórnamönnum á höfuðborgarsvæðinu, og skulu þessir aðilar hafa rétt til að taka til máls á fundinum og bera upp fyrirspurnir. Þá skal fulltrúum fjölmiðla heimilt að sækja aðalfundinn. Óskað er eftir að þátttakendur skrái sig með því að senda tölvupóst á betrisamgongur@betrisamgongur.is.

 

Óskað er eftir tilnefningu fjármála- og efnahagsráðherra um þrjá aðalmenn og einn varamann í stjórn félagsins, ásamt tilnefningu Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu um þrjá aðalmenn og einn varamann. Samkvæmt samþykktum félagsins skipar ráðherra formann stjórnar án tilnefningar úr hópi stjórnarmanna og tilkynna skal Samtökum sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu um fyrirhugað val á nýjum formanni félagsins með hæfilegum fyrirvara fyrir aðalfund, áður en val formanns er staðfest. Með vísan til 1. mgr. 63. gr. a í hlutafélagalögum er óskað eftir að tilnefningar í stjórn berist félaginu í síðasta lagi fimm dögum fyrir aðalfund.

 

Gögn vegna fundarins, ársreikningur auk tillagna stjórnar um starfskjarastefnu félagsins verður lögð fram hluthöfum til sýnis á skrifstofu félagsins, tveimur vikum fyrir aðalfund.

 

Reykjavík, 5. apríl 2023.
Stjórn Betri samgangna ohf.