Fréttir

FOJAB_Keldur Structural Plan

Áfangi í skipulagi Keldnalands

Skipulagsvinna á Keldnalandi í Reykjavík er í fullum gangi og áformað að því ferli ljúki í byrjun næsta árs. Reykjavíkurborg hefur samþykkt að opna kynningar og samráðsferli um vinnslutillögu á rammahluta aðalskipulags borgarinnar ásamt drögum að þróunaráætlun, hönnunarhandbók og samgönguskipulagi. Gögnin eru nú aðgengileg í skipulagsgáttinni.
 

Framundan er mikilvæg uppbygging á Keldnalandi og markmiðið er að þar rísi spennandi nútímahverfi sem byggir á vistvænum samgöngum og stuðlar að kolefnishlutlausu borgarsamfélagi. Fram kemur í frétt á vef Reykjavíkurborgar að Keldnaland er stórt þróunarsvæði og lykilsvæði í húsnæðisuppbyggingu í Reykjavík en fullbyggt rúmar hverfið 12.000 manns. Drögin byggja í meginatriðum á skipulagsvinnu sem FOJAB arkitektar og samstarfsaðilar haf unnið að undanfarin misseri í samstarfi Reykjavíkurborgar og Betri samgangna.

 

 
Tillaga í mótun
Áður hefur verklýsing aðalskipulagsbreytingar ásamt verðlaunatillögu FOJAB verið kynnt. Tillagan hefur verið þróuð áfram og meðal annars horft til athugasemda sem bárust við verklýsinguna.
Til dæmis:

  • Lega Borgarlínu hefur verið aðlöguð betur að landslagi.
  • Kálfamóa og öðrum mikilvægum grænum svæðum hefur verið gefið aukið rými.
  • Jaðrar nýrra hverfa hafa verið aðlagaðir betur að núverandi byggð.

 


Myndband: FOJAB
 
Friðlýsingarferli Grafarvogs er yfirstandandi og tekið er mið af því við skipulagsgerð. Áin Korpa og umhverfi hennar er hverfisverndað nú þegar samkvæmt aðalskipulagi á grunni náttúrufarsúttektar. Tillaga að byggð er utan verndaða svæðisins.
 

Fótspor byggðarinnar minnkað
Mótun og þróun tillagna hefur verið unnin í nánu samráði við Veitur og önnur svið borgarinnar meðal annars varðandi staðsetningu skóla og leikskóla. Einnig hefur verið í gangi virkt samtal við hagaðila á svæðinu, meðal annars um þróun atvinnukjarna.
Nákvæm lega Borgarlínu um svæðið hefur verið staðfest. Einnig hafa verið skilgreind ný útivistarsvæði og almenningsrými eins og Kálfamói og borgargarður hefur verið skilgreindur.
Byggð hefur lengi verið áætluð í landi Keldna og nágrennis. Samkvæmt breytingunum nú hefur fótspor þéttbýlis miðað við gildandi skipulag verið minnkað um 28 hektara. Í drögum að umhverfismati segir að þessi breyting dragi úr kolefnisspori byggðarinnar, auki þéttleika hennar og umfang grænna opinna svæða. Hverfið verði því enn gönguvænna, styðji betur við vistvæna ferðamáta, félagsleg samskipti og lýðheilsu.
 

 
Atvinnuhúsnæði verður fyrst og fremst í nálægð við Borgarlínustöðvar þar sem aðgengi er gott fyrir vistvæna ferðamáta. Í drögum að umhverfismati segir að það auðveldi fólki að ferðast til vinnu með virkum ferðamátum og styðji við mannlíf frá morgni til kvölds og verslun og þjónustu innan hverfanna.
 

 

Kynningarviðburðir í ágúst
Tilgangurinn með kynningunni núna er að opna vinnuferli tillögunnar og gefa fólki kost á að koma sjónarmiðum sínum á framfæri. Frestur til senda inn athugasemdir er til 25. ágúst. Til stendur að halda kynningarviðburði að Keldum í ágúst og mun Reykjavíkurborg auglýsa þá sérstaklega þegar nær dregur.
 
Keldnaland er í eigu Betri samgangna og rennur ágóðinn af þróun þess til fjárfestinga fyrirtækisins í samgönguinnviðum á höfuðborgarsvæðinu. Þar vega þyngst stofnavegaframkvæmdir og uppbygging Borgarlínu en auk þess er fjárfest í 100 km af göngu- og hjólastígum, bættri ljósastýringu, umferðarflæði og -öryggi.
 
Sjá nánar á upplýsingavef Reykjavíkurborgar um Keldnalandið