Fréttir

Arnarnesvegur yfirlitsmynd 3

Arnarnesvegur boðinn út

Þriðji áfangi Arnarnesvegar milli Rjúpnavegar og Breiðholtsbrautar hefur verið boðinn út. Tilboð verða opnuð 18. apríl. Vonir standa til að framkvæmdir geti hafist sumarið 2023 og áætlað er að verkinu ljúki haustið 2026. Markmiðið með framkvæmdinni er að auka umferðaröryggi vegfarenda og stytta ferðatíma, auk þess að létta verulega á umferð um Vatnsendaveg. Í Kópavogi, austan Reykjanesbrautar, búa hátt í 15.000 manns. Þá mun vegkaflinn bæta viðbragðstíma fyrir neyðaraðila í efri byggðum Kópavogs og Reykjavíkur til muna.

 

Framkvæmdirnar felast í nýbyggingu Arnarnesvegar á um 1,9 km kafla frá Rjúpnavegi að Breiðholtsbraut með tveimur hringtorgum, vegbrú yfir Breiðholtsbraut, einum ljósastýrðum vegamótum ásamt breikkun Breiðholtsbrautar frá Jaðarseli að Vatnsendahvarfi. Í verkinu eru tvenn undirgöng og tvær brýr fyrir gangandi og hjólandi, stofnstígar og stígatengingar. Auk þess tilheyrir verkinu lagning nýrrar hitaveituæðar Veitna, Suðuræðar II. Einnig verður unnið við hljóðdeyfigarða og hljóðveggi, regnvatnslagnir, snjóbræðslulagnir, settjörn, regnbeð, götulýsing og lagnir fyrir upplýsingakerfi. Verkið er samstarfsverkefni Betri samgangna, Vegagerðarinnar, Reykjavíkur, Kópavogs, Veitna og Mílu og er fjármagnað af Samgöngusáttmálanum.

 

Hér má sjá kynningarmyndband um framkvæmdina.

 

Frekari upplýsingar má nálgast á útboðsvef Vegagerðarinnar.