Fréttir

IMG_6550

Borgarlínan skiptir miklu máli fyrir uppbyggingu í Mosfellsbæ

„Fátt hefur verið rökrætt meira en Samgöngusáttmálinn, nema ef vera skyldi Hvalfjarðargöngin á sínum tíma,“ sagði Regína Ásvaldsdóttir bæjarstjóri Mosfellsbæjar við upphaf kynningarfundar sem Betri samgöngur og Vegagerðin efndu til í Hlégarði í síðustu viku. Hún minnti á að þverpólitísk samstaða hafi verið um uppfærslu sáttmálans sem kynnt var í ágúst í fyrra. „Borgarlínan skiptir okkur mjög miklu máli varðandi uppbyggingu Blikastaðahverfisins og líka uppbygginguna í kringum Korputún,“ sagði bæjarstjórinn.
 
Á fundinum í Mosfellsbæ var farið yfir stöðu og framgang þeirra verkefna sem heyra undir Samgöngusáttmálann. Breikkun Vesturlandsvegar milli Skarhólabrautar og Hafravatnsvegar er ein af þeim stofnvegaframkvæmdum Samgöngusáttmálans sem þegar er lokið auk hjóla- og göngustígs milli Varmár og Leirvogstungu sem var kláraður árið 2022. Þá er áætlað að lota 6 í Borgarlínunni, sem tengir Háholt í Mosfellsbæ við Ártúnshöfða, verði tilbúin árið 2033.
 

 
Af þeim 311 milljörðum sem áætlað er að setja í samgöngubætur á höfuðborgarsvæðinu til ársins 2040 fara 42% í stofnvegaframkvæmdir, 42% í Borgarlínuna, 13% í hjóla- og göngustíga og 3% í umferðarstýringu, flæði og öryggi.
 
Íbúar á fundinum spurðu meðal annars út í framkvæmdahraða og hvenær áhrifa færi að gæta fyrir þá sem ferðast daglega til og frá vinnu og skóla í öðrum sveitarfélögum sem og um almenningssamgöngur innan Mosfellsbæjar. Deildarstjóri hjá Strætó var til svara á fundinum og sagði að á þessu ári væri gert ráð fyrir því að tíðni leiðar 15 verði aukin yfir miðjan daginn en ekki bara á háannatíma eins og nú væri. Þegar fyrstu lotu Borgarlínunnar verður lokið muni það einnig skila sér í aukinni þjónustu Strætó við Mosfellsbæ því þeir innviðir með sérakreinum auki flæði og stytti ferðatíma.
 

 
Brot úr ávarpi Regínu Ásvaldsdóttur, bæjarstjóra Mosfellsbæjar, í spilara hér fyrir neðan:


 

Allar helstu upplýsingar um stöðu framkvæmda Samgöngusáttmálans má finna í nýrri upplýsingagátt:

Verksjá.is