Fréttir

betri_samgongur_adalfundur_2026_a-1

Fjárfest í samgönguinnviðum fyrir 6,2 milljarða árið 2025

Fjárfestingar Betri samgangna í samgönguinnviðum á höfuðborgarsvæðinu í fyrra voru tæplega 6221 milljónir króna. Umfangið er sambærilegt við fyrra ár þegar fjárfestingar jukust mikið í kjölfar uppfærslu Samgöngusáttmálans árið 2024. Þetta kom fram á aðalfundi Betri samgangna sem var haldinn í gær. Engar breytingar voru gerðar á stjórn fyrirtæksins og Eyjólfur Árni Rafnsson verður áfram stjórnarformaður.
 
Góður gangur í verkefnum sáttmálans
Samkvæmt skýrslu stjórnar, sem flutt var á fundinum, er almennt góður gangur í undirbúningi verkefna og framkvæmdum við stofnvegi jafnt sem Borgarlínu og göngu- og hjólastíga. Betri samgöngur voru með fimm útboð á árinu 2025 og það sem af er þessu ári hafa sjö verkefni verið boðin út. Framkvæmdir við Arnarnesveg og tengd mannvirki miðar vel áfram og áætlað að þeim ljúki í nóvember á þessu ári. Framkvæmdir fyrir smíði Fossvogsbrúar eru hafnar á Kársnesi í Kópavogi og vinna við landfyllingar Reykjavíkurmegin klárast í sumar. Þá fjármögnuðu Betri samgöngur í gegnum Samgöngusáttmálann fjórar framkvæmdir á göngu- og hjólastígum á árinu.
 
Mest fjárfest í stofnvegum
Samkvæmt ársreikningi var mest fjárfest í stofnvegaframkvæmdum eða fyrir tæpa 3,7 milljarða króna. Tæpir 1,7 milljarðar fóru í undirbúning og framkvæmdir fyrir Borgarlínuna, rúmar 529 milljónir króna í uppbyggingu göngu- og hjólastíga og tæpar 335 milljónir fóru í undirgöng og öryggis- flæðisbætandi aðgerðir. Alls nema fjárfestingar því tæpum 6221 milljónum króna en voru tæpar 6226 milljónir árið 2024.
 

Aðalfundur Betri samgangna 29. apríl 2026.

Rekstrargjöld Betri samgangna voru tæpar 402 milljónir króna árið 2025 og fjármunatekjur tæpar 113 milljónir. Eignir voru 39,5 milljarðar í árslok, samanborið við 28,3 milljarða í lok árs 2024. Hlutafé var óbreytt, 15 milljarðar, þannig að skuldir voru 24,5 milljarðar samanborið við 13,3 milljarða árið áður.
Handbært fé var um áramótin var 3,8 milljarðar samanborið við 2,2 milljarða á sama tíma árið áður.
 
Nánari upplýsingar:
Ársreikningur Betri samgangna 2025
Skýrsla stjórnar Betri samgangna fyrir 2025