Fréttir

Þrengri

Fjögur tilboð í landfyllingar Fossvogsbrúar

Vegagerðin hefur opnað tilboð sem bárust í landfyllingar og sjóvarnir vegna nýbyggingar brúar yfir Fossvog. Verkið er hluti af 1. lotu Borgarlínunnar og uppbyggingu fyrir þróunarsvæði í Skerjafirði. Stefnt er að því að framkvæmdir hefjist snemma á nýju ári en verkinu skal að fullu lokið 1. nóvember 2026.

Fjögur tilboð bárust frá Íslenskum aðalverktökum, Ístaki, Suðurverki og Loftorku og Gröfu og grjóti. Þrjú tilboðanna eru undir áætluðum verktakakostnaði. Vegagerðin fer nú yfir tilboðin þar sem meðal annars verður kannað hvort tilboðin standist útboðsskilmála. Að því loknu verður gengið til samninga og því næst hefst undirbúningur fyrir framkvæmdir.
 

 
Þá bárust fimm tilboð í eftirlit og ráðgjöf vegna landfyllinganna. Bæði þessi útboð voru auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu.

Eftirtaldir lögðu fram tilboð innan tilboðsfrests: Norconsult, VBV, VSB verkfræðistofa, VSÓ Ráðgjöf og Verkís. Þann 19. desember 2024 verður bjóðendum tilkynntar niðurstöður stigagjafar og verðtilboð hæfra bjóðenda.
 
Nánari upplýsingar má nálgast hér:

Fossvogsbrú (BL170)
Fossvogsbrú (BL170) eftirlit og ráðgjöf