Fréttir

Fossvogsbrú

Framkvæmdir að hefjast fyrir langþráða Fossvogsbrú

Framtíðar tenging fyrir almenningssamgöngur, gangandi og hjólandi  

Fossvogsbrú er fyrsta stóra framkvæmdin í Borgarlínuverkefninu en um er að ræða 270 m langa brú sem verður allt að 17 m breið. Hún tengir saman vesturhluta Kópavogs og Reykjavík með afgerandi hætti. Tilkoma brúarinnar verður bylting fyrir þau sem kjósa vistvæna samgöngukosti á svæðinu, ásamt því að stytta ferðalengdir og stuðla að því að draga úr umferðarálagi á vegum.

Borgarstjóri Reykjavíkur og bæjarstjóri Kópavogs segja Fossvogsbrú mikilvægan áfanga í að bæta samgöngur á höfuðborgarsvæðinu en gert er ráð fyrir að um 10 þúsund manns muni ferðast daglega um brúna.

Fossvogsbrú er hluti af Samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins og Vegagerðin hefur nú boðið út gerð landfyllinga og sjóvarna vegna nýbyggingar brúar yfir Fossvog fyrir hönd Betri samgangna.
 
Áætlað að 10 þúsund manns noti brúna daglega
Einar Þorsteinsson, borgarstjóri Reykjavíkur segir þetta er mikilvægan áfanga í samgöngubótum á höfuðborgarsvæðinu. „Fossvogsbrú mun tengja sveitarfélögin og létta mjög á umferð allt frá Hafnarfirði og inn í Reykjavík.
Í sama streng tekur Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri Kópavogs. „Fossvogsbrúin er mikilvæg tenging inn á vestanvert Kársnesið og því mikið hagsmunamál fyrir Kópavog. Með tilkomu Fossvogsbrúar er verið að tengja Kópavogsbúa nær stærstu vinnustöðum landsins, við háskóla og framhaldsskóla. Gert er ráð fyrir að 10.000 manns muni ferðast daglega um brúna frá Kópavogi og nærliggjandi sveitarfélögum. Ábatinn er því mikill fyrir höfuðborgarsvæðið allt.”
 

 
Verkið er hluti af 1. lotu Borgarlínu og uppbyggingu fyrir þróunarsvæði í Skerjafirði. Áætlað er að vinna við landfyllingar hefjist með vorinu 2025 á Kársnesi og í framhaldinu Reykjavíkurmegin. Verklok eru áætluð á árinu 2026. Stefnt er að því að bjóða út byggingu brúar og vegagerð að loknu landfyllingarútboði.

Útboðið markar formlega upphafið að framkvæmdum vegna byggingu Fossvogsbrúar, sem er ætluð Borgarlínuvögnum, strætisvögnum, gangandi og hjólandi vegfarendum, auk forgangsakstri lögreglu, sjúkraflutninga og slökkviliðs.
 

 
Um útboðið:

Gera skal landfyllingar báðum megin Fossvogs. Reykjavíkurmegin felur verkið í sér gerð um 2 hektara landfyllingar og 740 metra langra sjóvarna utan við núverandi strandlínu frá Skerjafirði í norðvestri að Kýrhamri í norðaustri. Á Kársnesi felur verkið í sér gerð um 0,3 hektara landfyllingar utan við núverandi strandlínu með 220 m af nýrri sjóvörn ásamt um 0,4 hektara fyllingum á landi. Verkið er samstarfsverkefni Vegagerðarinnar, Reykjavíkurborgar og Kópavogsbæjar.
Verkinu skal að fullu lokið 1. nóvember 2026.

Boðið verður til vettvangskönnunar vegna útboðsins kl. 13:00 miðvikudaginn 20. nóvember 2024.

Markmið Samgöngusáttmálans er að styrkja samgöngur á höfuðborgarsvæðinu og vinna að nauðsynlegum loftslagsmarkmiðum, meðal annars með tilkomu Borgarlínu og stórefldum almenningssamgöngum og uppbyggingu innviða eins og Fossvogsbrúar.