Fréttir

25002_IS_Road_tunnel_TUNNEL view 3 sunset_2025_12_01 copy

Fyrsta útboðið fyrir Sæbrautarstokk

Vegagerðin hefur boðið út verkhönnun á undirbúningsframkvæmdum fyrir Sæbrautarstokk. Um er að ræða gerð verkhönnunargagna, meðal annars fyrir rif, aðstöðusköpun og hjáleiðir fyrir Sæbraut. Sæbrautarstokkur, sem er eitt af verkefnum Samgöngusáttmálans, verður mikilvæg samgöngubót á höfuðborgarsvæðinu. Tryggir fjálst flæði bílaumferðar á löngum kafla og eykur umferðaröryggi fyrir gangandi og hjólandi á svæðinu.

 
Frestur til að skila inn tilboðum er til kl.14:00 þriðjudaginn 14. apríl 2026. Verki skal að fullu lokið 30. nóvember 2026. Útboðsgögn eru aðgengileg og eru afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign.

Á næstu vikum er svo stefnt að því að auglýsa tillögu að deiliskipulagi og umhverfismat framkvæmdarinnar.

 
Um Sæbrautarstokk:
 
Ásýndarmynd af mögulegu útliti gangamunna Sætbrautarstokks.Fyrirhugað er að Sæbraut verði sett í stokk á um 1 km löngum kafla sem nær frá Miklubraut og norður fyrir gatnamót Kleppsmýrarvegar og Skeiðarvogs.
Ný gatnamót við Kleppsmýrarveg/Skeiðarvog verða byggð ofan á norðurhluta stokksins með römpum að og frá Sæbraut til norðurs og suðurs. Í Sæbrautarstokk verða tvær akreinar í hvora átt auk blöndunarreina, að- og fráreina og neyðarvasa. Stoðveggir verða við enda stokksins og við rampana.
Eitt af markmiðunum er að bæta umhverfið í aðliggjandi byggð og tengja betur saman hverfi sem nú eru aðskilin af mikilli umferð.

Ásýndarmynd af mögulegum gangamunna Sæbrautarstokks.

Hvaða áhrif hefur Sæbrautarstokkur á höfuðborgarsvæðið?
 

  • Greiðari samgöngur fyrir akandi og aukið umferðaröryggi með frjálsu flæði á löngum kafla Reykjanesbrautar (Sæbrautar) með afnámi gatnamóta við Súðarvog og mislægum gatnamótum við Kleppsmýrarveg.
  • Greiðari samgöngur fyrir gangandi og hjólandi og aukið umferðaröryggi með tengingum ofan á stokki milli borgarhluta austan og vestan megin við Sæbraut.
  • Greiðar samgöngur fyrir Borgarlínu og Strætó með mislægri þverun við Sæbraut á sérakreinum.
  • Hljóðvist og loftgæði eru bætt yfir langan kafla.
  • Bættar tengingar almenningssamgangna sem og fyrir gangandi og hjólandi stuðla að auknu hlutfalli ferða vistvænna samgöngumáta sem er þáttur í að mæta loftlagsmarkmiðum stjórnvalda.
  • Meira pláss til uppbyggingar og borgarþróunar fjölgar jafnframt mögulegum notendum vistvænna samgangna.
  • Ofan á stokknum er gert ráð fyrir nýjum borgargarði með gróðri, göngu- og hjólastígum og góðri aðstöðu til útivistar og samveru.

Yfirlitsteikning af Sæbrautarstokki.

 
Allar helstu upplýsingar um stöðu framkvæmda Samgöngusáttmálans má finna í upplýsingagátt:
Verksjá.is