Vinna við niðurrif á gömlu göngubrúnni yfir Elliðaár við Dimmu hófst í vikunni og hefur brúin nú lokið hlutverki sínu eftir áralanga þjónustu við gangandi og hjólandi vegfarendur. Ný og glæsileg brú hafði þegar verið tekin í notkun en hún er staðsett um 100 metrum fyrir neðan þá gömlu. Áætlað er að vinnunni ljúki fyrir páska og á meðan þarf að loka aðliggjandi stígum.

Gamla brúin var upphaflega byggð sem lagnabrú fyrir vatns- og hitaveitu en var einnig nýtt sem göngubrú. Tröppur voru upp hana sem voru laskaðar og varasamar fyrir vegfarendur. Yfir vetrartímann var einnig orðið erfitt að fara þarna yfir, ekki síst með vagna, kerrur eða hjól og því löngu tímabært að byggja nýja brú sem uppfyllir nútímakröfur.

Hér fyrir neðan er myndband sem sýnir þegar brúnni er lyft af stöplum sínum.
Myndefnið tók Eggert Þór Stefánsson.


Nýja brúin við Dimmu tengist við hjóla- og göngustíga á svæðinu og er mikið notuð. Smíði hennar var unnin samhliða framkvæmdum við brú yfir Breiðholtsbraut og við nýjan Arnarnesveg. Verkefnin eru hluti af Samgöngusáttmálanum.


