Fréttir

saebrautarbru-20052025

Göngu­brú á Sæbraut komin upp

Ný göngu- og hjólabrú var hífð í heilu lagi á Sæbraut á mánudaginn og komið fyrir á stigahúsum sem reist hafa verið við Dugguvog og Snekkjuvog. Vonast er til að brúin verði tekin í notkun um miðjan júní. Hún mun standa þar til framkvæmdir vegna Sæbrautarstokks hefjast og verður þá hægt að flytja á annan stað.

 

Brúin er um 28 metra löng og vegur um 30 tonn. Hún mun standa þar til framkvæmdir vegna Sæbrautarstokks hefjast og verður þá hægt að flytja á annan stað. Brúin var flutt frá athafnasvæði Ístaks við Esjumela á flutningavagni í lögreglufylgd. Loka þurfti hluta Sæbrautar meðan vinnan við að koma henni fyrir á sinn stað stóð yfir.

 

Umferðaröryggi bætt verulega

Brúnni er ætlað að bæta umferðaröryggi verulega fyrir vegfarendur milli nýrrar Vogabyggðar og Vogahverfis, ekki síst fyrir skólabörn í Vogaskóla. Hún er staðsett miðja vegu milli gatnamóta Sæbrautar við Súðavog annars vegar og Kleppsmýrarvegs hins vegar. Með henni verður til ný gönguleið milli Dugguvogs við Tranavog og Snekkjuvogs.

 

Unnið við stigahús

Nú þegar brúin er komin heldur vinna við stigahúsin áfram. Gengið verður frá tengingum milli brúar og stigahúsa, sett upp lýsing og myndavélakerfi, gengið frá jarðvegi við stigahúsin og göngu- og hjólastígar malbikaðir. Lyftur verða síðan settar upp við báða brúarenda á næstu vikum.

 

Framkvæmdin er samvinnuverkefni Vegagerðarinnar, Reykjavíkurborgar og Betri samgangna og er fjármögnuð af Samgöngusáttmálanum.