Ný göngubrú yfir Sæbraut hefur nú verið opnuð en allt kapp var lagt á að hún yrði tilbúin áður en skólastarf hæfist. Brúin bætir umferðaröryggi verulega fyrir vegfarendur milli nýrrar Vogabyggðar og Vogahverfis, ekki síst fyrir nemendur í Vogaskóla. Lyftur eru við báða enda sem tryggja gott aðgengi fyrir öll.
Göngubrúin er yfirbyggð til að verja vegfarendur gegn veðri og færð því ekki er hægt að koma þjónustutækjum til snjóruðnings og hreinsunar upp á brúna. Tröppur og lyftur báðum megin tryggja gott aðgengi, þar á meðal fyrir hjólastóla og reiðhjól.
Brúin mun standa þar til framkvæmdir vegna Sæbrautarstokks hefjast en þar sem hún er færanleg verður hægt að nota hana á öðrum stað síðar. Brúin er um 28 metra löng og vegur um 30 tonn. Með tilkomu hennar er komin gönguleið milli Tranavogs og Snekkjuvogs.
Lyftubrú heppilegust á þessum stað
Reykjavíkurborg og Vegagerðin hófu undirbúningin fyrir þremur árum og skoðaðir voru möguleikar á því að gera brú annars vegar með römpum og hins vegar með lyftum. Mikill hæðarmunur er á þessum slóðum, svo lyftubrú þótti betri kostur. Góð reynsla hefur verið af sambærilegum brúm til dæmis í Noregi.
Framkvæmdin er samvinnuverkefni Reykjavíkurborgar, Vegagerðarinnar og Betri samgangna og er hluti af verkefnum Samgöngusáttmálans.
Verkís hannaði mannvirkið og Ístak sá um framkvæmdir. VBV verkfræðistofa hafði eftirlit og umsjón á sinni könnu. Vegagerðin hefur haft yfirumsjón með verkinu fyrir hönd verkkaupa.