Töluverður framgangur hefur verið í uppbyggingu hjólastíga á höfuðborgarsvæðinu í sumar. Nýr hjólastígur við Fjarðarhraun er nú tilbúinn en hann liggur samsíða Fjarðarhrauni, frá Fjarðarkaupum að Flatahrauni við Kaplakrika. Stígurinn var lagður samhliða veituframkvæmdum og jafnframt ráðist í endurbætur á þverunum við Hólshraun, Bæjarhraun og Flatahraun.
Framkvæmdir vestan Hafnarfjarðarvegar í Garðabæ hafa vart farið fram hjá þeim sem hjóla þessa vinsælu leið. Þar er verið að tvöfalda stígakerfið með aðskildum göngu- og hjólastígum sitt hvorum megin við undirgöngin við Arnarneshæð. Framkvæmdirnar hafa ekki gengið alveg áfallalaust fyrir sig og má það fyrst og fremst rekja til steypuvinnu á undirstöðum nýrrar hjólabrúar yfir lækinn í Garðabæ.
Unnið er að því að leysa þau mál svo hægt verði að ljúka framkvæmdunum. Við sveitarfélagamörk Kópavogs og Garðabæjar, við enda Súluness, standa jafnframt yfir veituframkvæmdir fyrir nýtt íbúðahverfi í Arnarlandi sem seinka lokafrágangi stígagerðarinnar.

Nýlega hófust framkvæmdir við að aðskilja göngu- og hjólastíga við Ásahverfi í Garðabæ, vestan Hafnarfjarðarvegar. Til framtíðar er stefnt að því að tengja stígakerfið vestan Hafnarfjarðarvegar við stígana vestan Reykjavíkurvegar í Hafnarfirði með nýrri brú í Engidal yfir Álftanesveg. Hönnun brúarinnar gengur vel og vonir standa til að hún verði reist á næstu árum.

Smám saman er því að verða til heildstætt stígakerfi með aðskildum göngu- og hjólastígum sem myndar samfelldan norður-suður ás um fjögur sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu: Hafnarfjörð, Garðabæ, Kópavog og Reykjavík. Lögð er áhersla á vandaða hönnun nýju stíganna og vonir standa til að þessi vinsæla hjólaleið verði enn betur nýtt þegar uppbyggingu hennar lýkur.

Allar helstu upplýsingar um stöðu framkvæmda Samgöngusáttmálans má finna í upplýsingagátt:
Verksjá.is
