Fréttir

bustadavegur_reykjanesbraut_2023_vilhelm-gunnarsson-08-scaled

Hönnun gatnamóta Reykjanesbrautar og Bústaðarvegar í útboð

Vegagerðin ásamt Veitum hefur auglýst eftir tilboðum í for- og verkhönnun á nýjum endurgerðum gatnamótum Reykjanesbrautar og Búastaðarvegar, ásamt þriðju lotu Borgarlínu sem mun ná frá Stekkjarbakka að fyrirhugaðri skiptistöð í Vogabyggð. Verkefnið er hluti af stofnvegaframkvæmdum Samgöngusáttmálans.
 
Verkið felst í megindráttum í for- og verkhönnun á:
 

  • Nýrri brú fyrir umferð bíla, sem aka norður Reykjanesbraut á leið inn á Bústaðaveg. Brúin kemur í stað núverandi ljósagatnamóta en miðeyju Reykjanesbrautar verður lokað og vinstri beygja frá Bústaðavegi inn á Reykjanesbraut aflögð. Við vestari akbraut Reykjanesbrautar verða að- og fráreinar þar sem einungis verða mögulegar hægribeygjur inn og út af Bústaðavegi.
  • Sérakreinum Borgarlínu, fyrir hvora akstursstefnu meðfram austurkanti Reykjanesbrautar frá Stekkjarbakka að Vogabyggð, ásamt framlengingu tveggja undirganga undir Reykjanesbraut.
  • Tveimur nýjum brúm undir Vesturlandsveg. Þar mun Borgarlína þvera Vesturlandsveg undir tveimur nýjum brúm.

 

Gatnamót Reykjanesbrautar og Bústaðarvegar.

Til að skapa rými fyrir Borgarlínu og forðast inngrip á verndarsvæði Elliðaárdals er gert ráð fyrir að Reykjanesbraut verði hliðrað til vesturs á kafla við gatnamótin.

Þá er innifalið í verkinu for- og verkhönnun á breytingum lagna Veitna ohf. Um er að ræða fráveitu, hitaveitu og rafveitu.

Yfirlitsmynd af svæðinu.

Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign  frá og með mánudeginum 20. apríl 2026 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 19. maí 2026.

Gatnamót Reykjanesbrautar og Bústaðarvegar.

 

Vegagerðin gerir ekki ráð fyrir að halda sérstakan opnunarfund en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda í útboðinu. Þriðjudaginn 2. júní 2026  verður bjóðendum tilkynntar niðurstöður stigagjafar og verðtilboð hæfra bjóðenda.

Útboðið er auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu.

Sjá útboðslýsingu hér.