Danska ráðgjafafyrirtækið COWI hefur unnið að mörgum samgönguverkefnum og hér á landi er Borgarlínan eitt þeirra. Jens Højgaard Christoffersen, forstjóri COWI, segir í viðtali við Morgunblaðið að eftir að almenningssamgöngukerfi eins og Borgarlínan eru tilbúin og komin í notkun upplifi hann sjaldan miklar kvartanir eða eftirsjá á meðal almennnings. Jafnvel þótt slík verkefni séu iðulega mikið rædd og gagnrýnd á undirbúnings- og byggingartíma.
Þetta hafi átt við um stór verkefni eins og Eyrarsundsbrúna milli Danmerkur og Svíþjóðar. Margir hafi sagst aldrei ætla að aka yfir hana og halda í staðinn áfram að taka ferjuna á milli. En eftir að brúin var vígð gleymdist það allt.
Christoffersen heimsótti á dögunum skrifstofu COWI á Íslandi og nokkra lykilviðskiptavini, þar á meðal verkefnastofu Borgarlínu hjá Betri samgöngum og nýja Landspítalann sem COWI vinnur einnig að.

Samnýting starfskrafta á milli landa
COWI keypti ráðgjafafyrirtækið Mannvit sem nú heitir COWI fyrir nokkrum árum og hér á landi starfa 265 manns hjá fyrirtækinu. Samnýting starfskrafta á milli landa hefur gengið vel að sögn forstjórans og hefur Borgarlínuverkefnið notið góðs af þesssu fyrirkomulagi. COWI í Danmörku hafi mikla reynslu af slíkum verkefnum.
Á móti hafi Íslendingar komið sterkir inn í vatnsafls- og jarðvarmaverkefni í Þýskalandi, Noregi og Skotlandi. Þá hafi sérfræðingar COWI í Noregi lagt sín lóð á vogarskálarnar í Landspítalana-verkefninu.
Hátt í átta þúsund manns starfa hjá COWI víðs vegar um heiminn á þremur sviðum: Orku, iðnaði og byggingum, og innviðum.

Í viðtalinu kemur einnig fram að forstjórinn reynir að heimsækja allar starfsstöðvar árlega, það gefi honum mikið að sjá fólk og hlusta á sjónarmið starfsmanna og viðskiptavina.
Mynd af Jens Højgaard Christoffersen: Copyright COWI/Paul Skovbakke
