Fréttir

saebrautarstokkur2-scaled

Kynningarfundur vegna Sæbrautarstokks haldinn 1. júní

Reykjavíkurborg, Vegagerðin og Betri samgöngur boða til opins kynningarfundar vegna Sæbrautarstokks mánudaginn 1. júní næstkomandi klukkan 17:00 í Vogaskóla. Sæbrautarstokkur er hluti af Samgöngusáttmálanum og verður staðsettur á tæplega 1 km löngum kafla frá mislægum gatnamótum við Miklubraut og norður fyrir gatnamót Kleppsmýrarvegar og Skeiðarvogs.
 
Á yfirborði Sæbrautarstokks verður nýr, grænn hverfisgarður sem bindur saman hverfin Vogahverfi og Vogabyggð. Markmið stokksins er að bæta umhverfisgæði og tengja betur saman hverfi, greiða fyrir umferðarflæði á Sæbraut og að greiða götu Borgarlínunnar. Þá er mannvirkinu ætlað að bæta flæði vöruflutninga við Sundahöfn og er ein af forsendum Sundabrautar.
 

Ásýndarmynd af Sæbrautarstokki.

Á fundinum mun Reykjavíkurborg ásamt ráðgjöfum frá Arkís arkitektum, Landslagi og Teiknistofunni Tröð kynna þær deiliskipulagstillögur sem nú eru í auglýsingu. Þá mun Vegagerðin ásamt ráðgjöfum frá Verkís verkfræðistofu kynna framkvæmd Sæbrautarstokks auk umhverfismatsskýrslu vegna framkvæmdarinnar.
 

Hægt er að nálgast frekari gögn um málið í skipulagsgátt:

 www.skipulagsgatt.is

Opið er fyrir athugasemdir til og með 24. júní næstkomandi.