Fréttir

Þórey G. Guðmundsdóttir, Rakel Þorbergsdóttir og Atli Björn Levy.

Liðsauki til framkvæmda

Betri samgöngur fá liðstyrk í kjölfar uppfærslu á samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins og tilfærslu verkefna.

 

Betri samgöngur ohf., sem hafa umsjón með framkvæmdum á samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins, bjóða velkomna til starfa þrjá sérfræðinga á sviði fjármála, samgönguverkfræði og samskipta. Ráðningarnar eru gerðar í kjölfar breytinga sem urðu með uppfærslu Samgöngusáttmálans í ágúst síðastliðnum. Með uppfærslunni voru verkefni færð til Betri samgangna og því er að hluta um færslu á störfum að ræða, en ekki ný störf.

 

„Það er okkur mikil ánægja að bjóða þessa þrjá reyndu sérfræðinga velkomna í starfsmannahópinn okkar og mikilvægt skref í að efla starfsemi fyrirtækisins”, segir Davíð Þorláksson, framkvæmdastjóri Betri samgangna. „Þekking þeirra og framlag er nauðsynlegt nú þegar uppfærður samgöngusáttmáli gerir okkur kleift að setja fullan þunga í framkvæmdir og halda áfram með undirbúning lykilverkefna sáttmálans. Markmið Betri samgangna er eftir sem áður að efla samgöngur og bæta allar samgönguleiðir á höfuðborgarsvæðinu.“

 

Þórey G. Guðmundsdóttir ráðin fjármálastjóri
Hún á að baki fjölbreyttan feril í fjármála- og viðskiptageiranum, hefur undanfarið starfað sem fjármálastjóri hjá grænmetis framleiðandanum VAXA. Þórey var um árabil framkvæmdastjóri fjármálasviðs Bláa lónsins, forstöðumaður hagdeildar Samskipa og forstöðumaður fjármálasviðs hjá Straumi-Burðarás fjárfestingarbanka. Þórey útskrifaðist sem viðskiptafræðingur (cand.oecon) af reikningshalds- og endurskoðunarsviði Háskóla Íslands árið 1995.

 

Atli Björn Levy verður forstöðumaður verkefnastofu Borgarlínu
Hann er með fjölbreytta reynslu sem verkfræðingur og verkefnastjóri. Atli Björn kemur til Betri samgangna frá Orku náttúrunnar þar sem hann hefur verið verkefnastjóri fjárfestingaverkefna á verkefnastofu. Hann starfaði áður á skrifstofu samgöngustjóra og á verkefnastofu umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar, sem verkefnastjóri hjá Isavia og verkfræðingur hjá Verkís. Atli Björn útskrifaðist með MSCE gráðu í samgönguverkfræði frá University of Washington í Seattle árið 2007 og lauk B.Sc. námi í umhverfis- og byggingarverkfræði frá Háskóla Íslands árið 2003.

 

Rakel Þorbergsdóttir ráðin samskiptastjóri

Rakel á að baki langan fjölmiðlaferil, starfaði í rúma tvo áratugi hjá RÚV sem fréttamaður, þáttastjórnandi, vaktstjóri og loks sem fréttastjóri frá 2014-2022. Hún starfaði nú síðast sem samskiptaráðgjafi fyrir utanríkisráðuneytið hjá NATO Force Integration Unit í Litáen. Rakel lauk meistaranámi í fjölmiðlun frá Emerson College í Boston árið 1999 og útskrifaðist með BA-gráðu úr stjórnmálafræði við Háskóla Íslands árið 1996.

 

Þá hefur Þorsteinn R. Hermannsson, sem gegnt hefur stöðu forstöðumanns þróunar hjá Betri samgöngum frá árinu 2021, verið gerður að aðstoðarframkvæmdastjóra.

 

Fyrir uppfærslu samgöngusáttmálans voru starfsmenn Betri samgangna þrír, þeir Davíð Þorláksson, framkvæmdastjóri, Þorsteinn R. Hermannsson aðstoðarframkvæmdastjóri og Þröstur Guðmundsson, forstöðumaður verkefna og áætlana.