Umhverfisáhrif fyrirhugaðra framkvæmda við gatnamót Reykjanesbrautar og Bústaðarvegar, ásamt hluta af 3. lotu Borgarlínu milli Vogabyggðar og Stekkjarbakka, voru rædd á opnum kynningarfundi fyrr í vikunni. Með breytingum á gatnamótum Reykjanesbrautar og Bústaðavegar verður ljósastýring við gatnamótin afnumin og leið Borgarlínu komið fyrir í sérrými. Umhverfismatsskýrslan er nú til kynningar hjá Skipulagsstofnun.
Nokkrir valkostir við útfærslu gatnamótanna voru til skoðunar og í umhverfismatsskýrslunni kemur fram að aðalvalkostur felst í að hliðra Reykjanesbraut til vesturs og setja vinstri beygju inn á Bústaðaveg á brú. Borgarlínu verður komið fyrir í sérrými í austurkanti Reykjanesbrautar en sú lausn hefur lágmarksáhrif á verndarsvæði í Elliðaárdal.
Á fundinum fóru Anna Rut Arnardóttir og Berglind Hallgrímsdóttir frá EFLU yfir helstu niðurstöður umhverfismatsins en hægt er að horfa á upptöku af fundinum í heild sinni hér fyrir neðan. Í skýrslunni er fjallað um áhrif á loftslag, fornminjar, fugla, jarðmyndanir,hljóðvist, loftgæði, landslag og sjónræna þætti, náttúruminjar, samgöngur og umferðaröryggi, útivist, vatnafar, vatnalíf og vatnshlot. Einnig er farið yfir hvaða valkostir hafa verið til skoðunar og fjallað um aðalvalkost framkvæmdaaðila.
Upptaka af fundinum
Frestur til athugasemda
Markmið framkvæmdarinnar er að bæta flæði bílaumferðar á gatnamótum Reykjanesbrautar og Bústaðarvegar, útfæra leið Borgarlínu ásamt göngu- og hjólarstígum. Með þessu verður dregið úr umferðartöfum og umferðaröryggi vegfarenda aukið.
Frestur til að senda inn athugasemdir er til 16. september 2025 í gegnum Skipulagsgáttina en þar má einnig nálgast allar upplýsingar.
Verkefnið er hluti af Samgöngusáttmálanum og unnið í samstarfi Vegagerðarinnar, Reykjavíkurborgar og Betri samgangna.
Verkefni Samgöngusáttmálans má skoða í upplýsingagáttinni: Verksjá.is