Framkvæmdir við Voginn í Kópavogi ganga vel en þar er unnið að umfangsmiklum endurbótum á göngu- og hjólastígum. Með framkvæmdunum verður aðstaða gangandi og hjólandi vegfarenda bætt til muna, meðal annars með aðskildum stígum, nýrri brú og betri lýsingu. Áætlað er að framkvæmdum ljúki í júní 2027.
Framkvæmdirnar eru hluti af uppbyggingu stofnhjólanets höfuðborgarsvæðisins og miða að því að skapa öruggari leiðir fyrir þau sem ferðast gangandi eða á hjóli.
Ýmsar endurbætur eru fyrirhugaðar á svæðinu sem munu bæta bæði öryggi og aðstæður vegfarenda.
- Aðskildir göngu- og hjólastígar sem skapa betra og öruggara umhverfi fyrir alla vegfarendur.
- Ný brú verður sett upp við hlið núverandi göngubrúar.
- Endurnýjun vegriða, meðal annars með slettuvörn á hluta þeirra til að draga úr áhrifum umferðar á Hafnarfjarðarvegi.
- Betri lýsing með endurnýjun ljósabúnaðar á svæðinu.
- Nýjar hljóðvarnargirðingar sem bæta hljóðvist meðfram stígunum.
Undanfarnar vikur hefur verktaki unnið að endurbótum sunnan við núverandi göngubrú, í átt að sveitarfélagamörkum Kópavogs og Garðabæjar.
Á næstunni verður ráðist í sambærilegar framkvæmdir og þegar hafa farið fram norðan við brúna. Jafnframt hefst vinna við undirstöður nýrrar brúar sem verður komið fyrir við hlið þeirrar sem fyrir er.
Aðstæður við Voginn eru um margt sérstakar. Framkvæmdarsvæðið er þröngt og afmarkast af fjörunni og friðuðu svæði með fornminjum að vestanverðu og Hafnarfjarðarvegi að austanverðu.
Þetta hefur gert gerð hjáleiða fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur krefjandi. Lögð er áhersla á að halda hjáleiðum opnum á meðan framkvæmdir standa yfir svo hægt sé að komast leiðar sinnar. Vegna þrengsla á svæðinu geta þær þó á köflum verið mjórri en æskilegt væri.
Á næstu vikum verður aðkoma verktaka að framkvæmdarsvæðinu um Kópavogstún. Vinnuvélar þurfa því að þvera göngu- og hjólastíginn frá Kársnesi.
Vegfarendur eru hvattir til að sýna sérstaka aðgát á svæðinu og fylgjast vel með merkingum og umferð vinnuvéla.
Framkvæmdin er unnin í nánu samstarfi við Kópavogsbæ og Vegagerðina. Framkvæmdir hafa áhrif á nærliggjandi svæði sem eru viðkvæm og því var haft samráð við Minjastofnun og Náttúruverndarstofnun í undirbúningi framkvæmdarinnar og á meðan henni stendur.
