Fréttir

Arnarnesvegur júlí 2026

Ný brú yfir Breiðholtsbraut opnuð fyrir umferð á morgun

Opnun nýrrar brúar yfir Breiðholtsbraut á morgun föstudag er stór áfangi í umfangsmiklum framkvæmdum við nýjan Arnarnesveg, milli Rjúpnavegar í Kópavogi og Breiðholtsbrautar í Reykjavík.  Breytingar verða á umferð á Breiðholtsbraut, milli Jaðarsels og Vatnsendahvarfs þegar brúin verður tekin í notkun í fyrramálið. Loka þarf þessum hluta Breiðholtsbrautar, frá kl. 23:00 í kvöld til kl. 06:00 í fyrramálið á meðan unnið er að undirbúningi fyrir færslu umferðar.
 
Auk opnun brúarinnar verða ný umferðarljós við gatnamót Arnarnesvegar og Breiðholtsbrautar tekin í notkun. Jafnframt verður umferð hleypt á Arnarnesveg milli Breiðholtsbrautar og Vatnsendavegar, auk þess sem nýr hluti Vatnsendavegar milli Arnarnesvegar og Vatnsendahvarfs verður opnaður.
 

Kort sem sýnir hvar nýja leiðin liggur.

Samhliða þessum breytingum verður gatnamótum Vatnsendahvarfs og Breiðholtsbrautar lokað, umferðarljósin þar fjarlægð og skipulagi gatnamótanna verður breytt. Áætlað er að þau verði opnuð í breyttri mynd síðla hausts. Ökumönnum er bent á að aka til og frá Vatnsendahvarfi í gegnum Vatnsendaveg, nýtt hringtorg við Arnarnesveg og ný gatnamót á Breiðholtsbraut.
 

Nýja brúin yfir Breiðholtsbraut og nýtt hringtorg við Arnarnesveg.

Yfirlitsmynd af gatnamótum Breiðholtsbrautar og Vatnsendahvarfs.

 

Í hnotskurn:

  • Lokað fyrir umferð á Breiðholtsbraut, milli Jaðarsels og Vatnsendahvarfs, frá kl. 23:00 fimmtudagskvöldið 9. júlí til kl. 06:00 föstudaginn 10. júlí.
  • Ný brú yfir Breiðholtsbraut opnuð fyrir bílaumferð að morgni föstudagsins 10. júlí.
  • Ný umferðarljós við gatnamót Arnarnesvegar og Breiðholtsbrautar tekin í notkun.
  • Arnarnesvegur opnaður fyrir umferð milli Breiðholtsbrautar og Vatnsendavegar.
  • Nýr hluti Vatnsendavegar, milli Arnarnesvegar og Vatnsendahvarfs, opnaður.
  • Gatnamótum Vatnsendahvarfs og Breiðholtsbrautar lokað.

 
Vegfarendur eru beðnir um að sýna aðgát, fylgja nýrri merkingu og virða leiðbeiningar á svæðinu á meðan breytingarnar taka gildi.
 
Verkefnið er fjórða stofnvegaframkvæmd Samgöngusáttmálans og er áætlað að henni verði lokið í nóvember næstkomandi.