Fréttir

Fulltrúar Reykjavíkur, Vegagerðarinnar og Betri Samgangna við opnunina.

Ný brú yfir Dimmu formlega vígð

Ný göngu- og hjólabrú yfir Dimmu í Elliðaárdal var formlega vígð í gær. Nemendur úr fjórða bekk Árbæjarskóla tóku þátt í athöfninni og hjálpuðu til við að marka þessi tímamót í uppbyggingu göngu- og hjólaleiða á höfuðborgarsvæðinu. Katrín Halldórsdóttir, forstöðumaður göngu- og hjólastíga var fulltrúi Betri Samgangna á opnuninni. „Brúin um Dimmu er mikilvægur hlekkur í stofnhjólaneti höfuðborgarsvæðisins þar sem hún tengir saman nýtt stígakerfi sem er að rísa meðfram uppbyggingu nýs Arnarnesvegar við vinsælt stígakerfi sem liggur um Elliðaárdal,” segir Katrín.

 

 

Brúin hefur þegar verið tekin í notkun og nýtist gangandi og hjólandi vegfarendum um Elliðaárdal. Með henni verða tengingar um dalinn betri og aðgengi greiðara fyrir fjölbreyttan hóp vegfarenda.

 

Nýja brúin kemur í stað eldri brúar yfir Dimmu sem upphaflega var byggð sem lagnabrú fyrir vatns- og hitaveitu en var síðar einnig nýtt sem göngubrú. Aðgengi að gömlu brúnni var um tröppur og því óaðgengilegt fyrir meðal annars reiðhjól, barnavagna og kerrur. Gamla brúin var rifin fyrr á árinu og er nýja brúin staðsett um 100 metrum neðar í dalnum. Nýja brúin býr yfir góðu aðgengi fyrir öll, hún er breið og rúmar vel hjólandi og gangandi vegfarendur sem og aðra hópa sem að nota stígakerfið.

 

Framkvæmdirnar eru hluti af Samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins þar sem lögð er áhersla á að bæta innviði fyrir fjölbreytta ferðamáta og skapa öruggari leiðir um höfuðborgarsvæðið.