Fréttir

Göngubrú Sæbraut 3

Ný göngubrú yfir Sæbraut

Framkvæmdir eru hafnar við nýja göngu- og hjólabrú yfir Sæbraut. Uppsetning á stálvirki fyrir undirstöðurnar stendur nú yfir auk þess sem unnið er að samsetningu brúarinnar sem verður sett í heilu lagi á sinn stað. Gert er ráð fyrir að brúin verði tilbúin fyrir miðjan maí ef veðuraðstæður leyfa.
 
Göngubrúin verður staðsett um það bil miðja vegu milli gatnamóta Súðarvogs og Kleppsmýrarvegar. Hún er hluti af Samgöngusáttmálanum og er samvinnuverkefni Vegagerðarinnar, Betri samgangna og Reykjavíkurborgar. Með tilkomu nýrrar brúar verður til ný göngu- og hjólaleið milli Tranavogs og Snekkjuvogs. Brúnni er ætlað að bæta umferðaröryggi verulega fyrir vegfarendur milli nýrrar Vogabyggðar og Vogahverfis, ekki síst fyrir skólabörn í Vogaskóla. Brúin mun þjóna hlutverki sínu þar til Sæbraut verður sett í stokk.
Samkvæmt upplýsingum Vegagerðarinnar gengur vel að reisa stálvirki fyrir undirstöðurnar vestan megin Sæbrautar og að þeirri vinnu lokinni hefst uppsetning á stálvirkinu austan megin.
 

 
Samhliða þessu er unnið að samsetningu brúarinnar og setja meðal annars á hana veggi og þak. Áformað er að hífa brúna upp í heilu lagi í apríl og koma henni fyrir á sínum stað. Það verður gert að næturlagi til að valda sem minnstum umferðartruflunum á Sæbraut. Jafnframt er vonast til að íbúar í nágrenninu verði fyrir sem minnstu raski meðan þessi vinna fer fram.
 

 
Næsta skref verður síðan að setja upp stigahús sitthvoru megin brúarinnar, klæða þau og ganga frá tengingum milli brúar og stigahúsa. Þá verður sett upp lýsing og myndavélakerfi, gengið frá jarðvegi við stigahúsin og göngu- og hjólastígar malbikaðir. Lyftur verða settar upp við báða brúarenda. Þær koma tilbúnar og verða hífðar á sinn stað í heilu lagi.
 

Allar helstu upplýsingar um stöðu framkvæmda Samgöngusáttmálans má finna í nýrri upplýsingagátt:

Verksjá.is