Fréttir

Arnarnesvegur krani

Nýr Arnarnesvegur að mótast

Framkvæmdir við nýjan Arnarnesveg milli Kópavogs og Reykjavíkur eru í fullum gangi og nú er áætlaður framkvæmdatími ríflega hálfnaður. Verkið hefur gengið ágætlega samkvæmt upplýsingum Vegagerðarinnar sem hefur umsjón með framkvæmdum. Arnarnesvegur er hluti af stofnvegaframkvæmdum Samgöngusáttmálans og fjármagnaður af honum.
 
Helstu verkþættir sem unnið er við er frágangur nýrrar akbrautar við Breiðholtsbraut og þar er lokið malbikun austan Jaðarsels að Vatnsendahvarfi.
 

 
Unnið hefur verið við fyllingar undir Arnarnesveg og gangstíga við Arnarnesveg og í Elliðaárdal, klapparskeringar í vegstæði Arnarnesvegar sunnan Breiðholtsbrautar, uppsteypu brúarstöpla brúar yfir Breiðholtsbraut og hafin er vinna við uppsetningu undirsláttar fyrir brúardekkið.
 

 
Þá er unnið við frágang hljóðmana við Arnarnesveg og Breiðholtsbraut. Uppsteypu endastöpla göngubrúar yfir Arnarnesveg á móts við Turnahvarf er að ljúka. Samhliða er verið að gera breytingar á stofnlögnum heits- og kalds vatns þar sem ný undirgöng koma undir Arnarnesveg við Rjúpnaveg og tengingar frárennslislagna. Framleiðsla á forsteyptum einingum undirganganna er einnig hafin.
 
Afgangsefni nýtt í skíðabrekkuna
 

Ónothæfum lausum jarðefnum sem falla til vegna framkvæmdanna hefur verið ekið í Vetrargarð Reykjavíkurborgar sem er í uppbyggingu þar sem skíðabrekkan er við Jafnasel, þessari vinnu er nú að ljúka og hefur verið sáð í stærstan hluta svæðisins. Ennfremur er unnið við frágang á dælubrunni og stígtengingum við nýju undirgöngin undir Breiðholtsbraut á móts við Völvufell.
 
Göngubrúin Dimma tilbúin í sumar
 

Við Elliðaár standa yfir framkvæmdir við við göngu- og hjólabrú yfir Dimmu, lokið er uppsetningu brúarinnar en eftir er frágangur á vatnsþéttilagi, malbiki og handriðum brúarinnar. Samhliða stendur yfir vinna við stígtengingar sitthvoru megin við brúna. Væntingar standa til þess að hægt verði að hleypa gangandi og hjólandi yfir brúna í sumar.
 

 
Áætluð verklok Arnarnesvegar og tengdra framkvæmda eru í nóvember 2026 en vinna við þær hófst í september 2023.
 

 

Allar helstu upplýsingar um stöðu framkvæmda Samgöngusáttmálans má finna í upplýsingagátt:

Verksjá.is