Borgarlínan

Borgarlinan-Hamraborg copy

Borgarlínan

Samgöngusáttmálinn gerir ráð fyrir að 42% fjárfestinga hans séu í hraðvagnakerfi sem nefnist Borgarlínan. Framkvæmdunum verður skipt upp í sex lotur. Að neðan má sjá frekari upplýsingar um hverja og eina þeirra ásamt áætluðum fjárfestingum Betri samgangna í samræmi við Samgöngusáttmálann. Auk þeirra er gert ráð fyrir tengdum fjárfestingum af hálfu sveitarfélaganna á hverjum stað. Upplýsingar eru uppfærðar í júní og desember ár hvert.

Lotur

Lota 1

Ártúnshöfði – Hlemmur – Hamraborg

Frumdrög: 2019-2020 Hönnun: 2020-2028 Framkvæmd: 2024-2031 Áætlaður kostnaður: 47,5 ma.kr. (Q3 2024)
Lota 2

Hamraborg – Lindir

Frumdrög: 2025 Hönnun: 2026-2030 Framkvæmd: 2030-2032 Áætlaður kostnaður: 7,4 ma.kr. (Q3 2024)
Lota 3

Mjódd – BSÍ

Frumdrög: 2025 Hönnun: 2026-2029 Framkvæmd: 2029-2031 og 2033-2036 Áætlaður kostnaður: 17,1 ma.kr. (Q3 2024)
Lota 4

Fjörður – Miklabraut

Frumdrög: 2025 Hönnun: 2031 Framkvæmd: 2031-2035 Áætlaður kostnaður: 19,8 ma.kr. (Q3 2024)
Lota 5

Ártún – Spöng

Frumdrög: 2025 Hönnun: 2033 Framkvæmd: 2033-2035 Áætlaður kostnaður: 11,7 ma.kr. (Q3 2024)
Lota 6

Ártún – Háholt

Frumdrög: 2024-2025 Hönnun: 2027 Framkvæmd: 2028-2033 Áætlaður kostnaður: 16,3 ma.kr. (Q3 2024)