Vegagerðin skrifaði í dag undir samning við exa nordic ehf. um for-og verkhönnun gatnamóta Reykjanesbrautar og Bústaðavegar, ásamt hluta af 3. lotu Borgarlínu. Verkið er hluti af stofnvegaframkvæmdum Samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins.
Í byrjun júlí óskaði Vegagerðin eftir tilboði í for- og verkhönnun á endurgerð gatnamóta Reykjanesbrautar og Bústaðavegar, auk hönnunar á legu Borgarlínu frá Stekkjarbakka A-V að væntanlegri skiptistöð Borgarlínu í Vogabyggð sem staðsett verður við Súðarvog. Ráðgjafafyrirtækið exa nordic ehf. var hlutskarpast í útboðinu en alls bárust fimm tilboð.Með exa nordic í ráðgjafateyminu eru Bjerking AB, Lota ehf., Landslag ehf., Plan Studio ehf. og Brekke & Strand Akustikk ehf., en exa nordic leiðir samstarfið.
Bergþóra Þorkelsdóttir forstjóri Vegagerðarinnar og Arnar Björn Björnsson framkvæmdastjóri exa nordic ehf. undirrituðu samninginn í dag.
Á leiðinni verða tvær nýjar brýr undir Vesturlandsveg við vestari kvísl Elliðaár, tvenn núverandi undirgöng sem þarf að lengja og ný brú fyrir rampa á gatnamótum við Bústaðaveg. Reykjanesbraut þarf að hliðfæra til vesturs á kafla til að forðast inngrip á verndarsvæði Elliðaárdals. Útboðið var auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu.

Verkefnið er unnið í samstarfi Vegagerðarinnar, Betri samgangna, Reykjavíkurborgar og Veitna.
