Reykjavíkurborg og Kópavogur hafa samþykkt að kynna tillögur að rammahluta aðalskipulags fyrir fyrstu lotu Borgarlínunnar sem er á milli Ártúnshöfða í Reykjavík og Hamraborgar í Kópavogi. Þá hefur Vegagerðin samhliða lagt fram til kynningar umhverfismatsskýrslu vegna framkvæmda við þessa fyrstu lotu.
Skipulagsgögnin fjalla meðal annars um legu Borgarlínunnar, staðsetningu stöðva og umhverfisáhrif framkvæmda og reksturs Borgarlínunnar. Jafnframt eru sett fram almenn viðmið um hönnun göturýma og forgang virkra ferðamáta og almenningssamgangna.
Með Borgarlínunni verður til nýtt almenningssamgöngukerfi sem bindur borgina og nágrannasveitarfélög betur saman, með betri lífsgæðum og einfaldara lífi fyrir borgarbúa. Með henni er verið að styrkja innviði og taka nauðsynleg skref í loftslagsmálum og í átt að betri lýðheilsu.
Kort af Borgarlínu, lotu 1.
Ásýndarmynd. Drög að hönnun á Laugavegi við Hátún.
Kynningarfundir í janúar
Skipulagsgögnin og umhverfismatsskýrsla eru aðgengileg í Skipulagsgáttinni. Frestur til athugasemda er til 25. janúar 2025
Kynningarfundir verða haldnir á nýju ári; í Reykjavík fimmtudaginn 9. janúar og í Kópavogi miðvikudaginn 15. janúar. Fundirnir verða nánar auglýstir síðar.
Ásýndarmynd. Drög að hönnun á Borgarholtsbraut.
Ásýndarmynd af skýli við borgarlínustöð.
Sjá nánar hér:
Skipulagsgátt: Fyrsta lota Borgarlínu.