Uppbygging á stígakerfi höfuðborgarsvæðisins miðar vel áfram og hafa Betri samgöngur undirritað verksamning um næsta áfanga verkefnisins „Þrír stígar“. Framkvæmdir hefjast í Garðabæ og Kópavogi í júní. Verkefnið felur í sér gerð aðskilinna göngu- og hjólastíga ásamt stígalýsingu, nýjum skiltum og merkingum á tveimur framkvæmdarsvæðum. Gert er ráð fyrir að framkvæmdum ljúki fyrir árslok en þær eru hluti af Samgöngusáttmálanum.
Um er að ræða framhald fyrri framkvæmda sem staðið hafa yfir undanfarið ár í Hafnarfirði og Garðabæ. Framkvæmdakaflinn í Garðabæ liggur meðfram Hafnarfjarðarvegi frá Breiðási að Álftanesvegi í Engidal. Í Kópavogi verða lagðir stígar meðfram Hafnarfjarðarvegi við Voginn, frá undirgöngum við Kópavogstún að sveitarfélagamörkum Garðabæjar.

Nýlega voru lagðir nýir stígar sunnan við Kópavogsháls og framkvæmdir standa nú yfir sunnan og norðan Arnarnesundirganga. Með nýjum framkvæmdum verður stígakerfið tengt saman í samfellda leið fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur.

Jafnframt verður byggð ný brú fyrir gangandi vegfarendur við ósinn en núverandi brú verður nýtt fyrir hjólandi umferð.

Aðrar framkvæmdir á stofnstíganeti höfuðborgarsvæðisins
Í Hafnarfirði hafa staðið yfir framkvæmdir við Fjarðarhraun samhliða framkvæmdum Veitna. Þar er verið að leggja nýjan hjólastíg frá gatnamótum Fjarðarhrauns og Hafnarfjarðarvegar að Flatahrauni. Stefnt er að verklokum í sumar.

Í Reykjavík hafa framkvæmdir í Skógarhlíð staðið yfir og er gerð göngu- og hjólastíga á lokametrunum. Þá var nýlega lagður nýr stígur við Sæbraut, frá Laugarnestanga að Klettagörðum. Vestan Laugarnestanga er þegar til staðar aðskilið stígakerfi og í sumar stendur til að tengja leiðirnar saman með nýrri þverun fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur.

Áætlað að byggja 100 km af stígum
Frá árinu 2020 hafa verið lagðir 12 km af hjólastígum og sambærilegt magn göngustíga með fjármagni Samgöngusáttmálans. Nú eru í framkvæmd 8 km af hjólastígum og sambærilegt magn göngustíga sem áætlað er að verði tilbúnir fyrir árslok.
Á sama tíma hafa verið gerð þrenn undirgöng fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur við Arnarneshæð, Litluhlíð og Bústaðaveg hjá Sprengisandi. Þá hafa einnig verið byggðar fjórar brýr fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur. Tvær þeirra eru við stofnstíga milli Varmárhverfis og Leirvogstunguhverfis um Ævintýragarð í Mosfellsbæ, en hinar tvær eru í Elliðaárdal í Reykjavík, annars vegar við Dimmu og hins vegar við Grænugróf.
Fjárfesting í gegnum Samgöngusáttmálann í stígakerfi höfuðborgarsvæðins er áætluð rúmir 40 milljarðar króna eða um 13% af heildafjárfestingu sáttmálans. Alls verða byggðir 100 kílómetrar af stígum auk undirganga og brúa.
Allar helstu upplýsingar um stöðu framkvæmda Samgöngusáttmálans má finna í upplýsingagátt:
Verksjá.is
