Fréttir

hjola_og_gongustigar_a_print-9

Uppfærsla Samgöngusáttmálans hafin

Ríkið sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðisins hafa ákveðið að hefja undirbúning að því að uppfæra Samgöngusáttmálann og gera viðauka við hann. Betri samgöngum hefur verið falið að uppfæra framkvæmdatöflu sáttmálans, þ.m.t. tíma- og kostnaðaráætlanir. Einnig að meta áhrif stofnvega- og Borgarlínuinnviða m.t.t. markmiða um greiðar samgöngur, fjölbreytta ferðamáta, kolefnishlutlaust samfélag og umferðaröryggi. Á þeim grunni verði sett mælanleg undirmarkmið og árangursvísar. Þá hefur Betri samgöngum verið falið að móta leiðir að bæta stjórnskipulag verkefnisins og einstakra verkefna.

 

Verkáætlun um uppfærsluna var samþykkt á fundi forsætisráðherra, fjármála- og efnahagsráðherra og innviðaráðherra með bæjarstjórum sveitarfélaganna, borgarstjóra og Samtökum sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu fyrir helgi. Gert er ráð fyrir að hægt verði að undirrita viðauka við Samgöngusáttmálann í sumar.

 

Samgöngusáttmálinn hefur þegar bætt samgöngur á svæðinu og aukið greiðleika þeirra. Mikilvægar framkvæmdir hafa klárast, s.s. á Reykjanesbraut í Hafnarfirði, Suðurlandsvegi milli Vesturlandsvegar og Hádegismóa og á Vesturlandsvegi í Mosfellsbæ. Þá hafa einnig verið lagðir rúmlega 13 km af hjólastígum. Þá er stefnt að því að framkvæmdir við Fossvogsbrú hefjist á þessu ári.

 

Í undirbúningi að uppfærslu sáttmálans þarf að taka tillit til mikilla verðhækkana, einkum í verklegum framkvæmdum, sem hafa áhrif á kostnaðaráætlanir. Einnig verða einstök verkefni skoðuð, þar sem kostnaðaráætlanir voru vanáætlaðar. Kostnaðaráætlun vegna Sæbrautarstokks var t.a.m. ekki að fullu tilbúin þegar sem Samgöngusáttmálinn var gerður.

 

Ýmis tækifæri felast einnig til uppfærslu sáttmálans, til að mynda með því að endurmeta mat á tekjumöguleikjum í kringum þróunarsvæði sem myndast vegna uppbyggingar stokka. Ráðist verður í nokkur verkefni til að undirbúa viðauka við Samgöngusáttmálann í samræmi við nýja verkáætlun. Loks er stefnt að því að viðræðuhópur ríkis og sveitarfélaga klári drög að samningi um eflingu almenningssamgangna. Rekstur almenningssamgangna á höfuðborgarsvæðinu verði tryggður með aðkomu sveitarfélaga og ríkisins.

 

Nánari upplýsingar má nálgast á vef innviðráðuneytis.