Betri samgöngur hafa auglýst útboð á framleiðslu og afhendingu stöðvabúnaðar fyrir Borgarlínu. Um er að ræða mikilvægan áfanga í undirbúningi fyrstu lotu Borgarlínunnar, þar sem hönnun stöðvanna færist nú yfir á næsta stig. Útboðið snýr að innkaupum, framleiðslu og afhendingu búnaðar sem mun móta ásýnd og upplifun farþega á stöðvum Borgarlínu. Útboðið er auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu og frestur til að senda inn fyrirspurnir er til 8. júní næstkomandi.
Gert er ráð fyrir að samið verði við einn birgi á grundvelli rammasamnings. Fyrsti hluti samningsins tekur til 26 stöðva í fyrstu lotu Borgarlínunnar, sem nær frá Krossamýrartorgi að Hamraborg. Hver stöð samanstendur af tveimur brautarpöllum, einum í hvora akstursstefnu. Auk þess er gert ráð fyrir möguleika á frekari innkaupum vegna annarra lota Borgarlínunnar á gildistíma rammasamningsins.
Útboðið nær til framleiðslu og afhendingar á skýlum og öðrum stöðvarbúnaði, þar á meðal tækniskápum, upplýsingastólpum, bekkjum, sorpílátum og öðrum tilheyrandi götugögnum. Markmiðið er að stöðvar Borgarlínunnar verði auðþekkjanlegar, vandaðar og þægilegar fyrir farþega, með samræmdu yfirbragði og búnaði sem hentar íslenskum aðstæðum.
Skref í átt að sýnilegri Borgarlínu
Stöðvarnar eru mikilvægur hluti af heildarupplifun Borgarlínu. Þar mætast farþegaupplýsingar, skjól, lýsing, greitt aðgengi og borgarrýmið sjálft. Í hönnuninni er lögð áhersla á einfalt og tímalaust yfirbragð, góða endingu, þægindi og að stöðvarnar geti aðlagast mismunandi aðstæðum á leiðinni.
Með auglýsingu útboðsins er enn eitt stórt skref stigið í átt að því að Borgarlínan verði sýnilegri í borgarumhverfinu. Undanfarin ár hefur staðið yfir vinna við gerð deiliskipulags, hönnun og undirbúning fyrstu lotunnar, og mun sú vinna mun halda áfram á næstu árum. Þessi undirbúningur er nú jafnt og þétt að skila sér í framkvæmdum við uppbyggingu innviða sem munu breyta samgöngum á höfuðborgarsvæðinu.
Borgarlína er hágæða almenningssamgöngukerfi þar sem vagnarnir aka að mestu í sérrými og njóta forgangs á gatnamótum. Stöðvarnar gegna þar lykilhlutverki, enda er þeim ætlað að gera ferðalagið einfaldara, þægilegra og aðgengilegra fyrir farþega. Með þessu útboði er stigið mikilvægt skref í átt að færa þá framtíðarsýn nær veruleika.
Upplýsingar um útboðið má nálgast á útboðsvefnum. Frestur til að senda inn fyrirspurnir er til 8. júní næstkomandi og tilboð verða opnuð 16. júní 2026.
