Fréttir

SRS_3306

Verkefnastjórnsýsla Samgöngusáttmálans

Betri samgöngur gerðu rammasamning við Vegagerðina árið 2021 þar sem Vegagerðinni var fyrir hönd fyrirtækisins falin umsjón með undirbúningi og framkvæmd verkefna Samgöngusáttmálans. Samningurinn var byggður á lögum um fyrirtækið og samþykktum þess. Í samningnum er kveðið á um að Betri samgöngur fari með yfirumsjón og eigendaeftirlit með uppbyggingu verkefna sáttmálans gagnvart Vegagerðinni, en að Vegagerðin annist undirbúning og verklegar framkvæmdir.

 

Einnig er kveðið á um að fara skuli eftir sömu áföngum við uppbygginguna og gert er í lögum um skipan opinberra framkvæmda nr. 84/2001. Þar er kveðið á um að verkefnaundirbúningi skuli skipt í frumathugun, áætlanagerð, verklega framkvæmd og skilamat. Í verkefnum sáttmálans hefur þetta verið útfært þannig að verkefni hafa gengið í gegnum frumdrög, forhönnun, verkhönnun, framkvæmd og skilamat.

 

• Á grunni 9. greinar samningsins hafa síðan verið gerðir samningar um einstök áfangastig verkefna þar sem tekið á eftirfarandi þáttum:

  • Lýsingu á verkefni (umfang, áætlanagerð og nákvæmni).
  • Samsetningu og staðsetningu verkefnastofu eða verkefnateymis.
  • Áætlaðri framvindu verkefnis og tíðni á uppfærslu verkáætlana.
  • Heildarfjárheimild til verkefnis (væntigildi og vikmörk).
  • Útboðsheimild eftir því sem við á.
  • Upplýsingum um tengiliði sem annast samskipti og hafa heimild til að skuldbinda vegna verkefnisins.

 

Í samningum um einstök verkefni hefur verið kveðið á um viðmiðunarflokka kostnaðaráætlana, fyrirkomulag verkefnisstjórnunar.

 

Borgarlínan

Verkefnastjórnsýsla verkefnastofu Borgarlínunnar (e. Project Management Office) er lýst í stefnuskjali verkefnastofunnar (e. Project Execution Plan). Til viðbótar stefnuskjali eru yfir tuttugu skráðar verklagsreglur og leiðbeiningar sem taka á ýmsum þáttum verkefnastjórnunar. Áhættuskrár eru gerðar sem fara í reglulega rýni og uppfærslu eftir því sem verkefnavinnunni vindur fram. Lauslega áætlað eru hátt í þrjúhundruð áhættuþættir og tækifæri skráð í áhættuskrár nú. Reglulegar kannanir eru gerðar meðal starfsmanna verkefnastofunnar um líðan í starfi þar sem streita og álag er einn af lykil áhættuþáttum allra flókinna verkefna.

 

Stofnvegir og hjólastígar
Vegagerðin er með vottað gæðastjórnunarkerfi byggt á ISO 9001:2015 og er verkefnastjórnsýsla þeirra hluti af vottuðu gæðakerfi.

 

Betri samgöngur

Betri samgöngur er með skjalfest verklag þannig að öll verkefni þurfa samþykki stjórnar áður en verkefni færast á milli hönnunarstiga og í framkvæmd. Einnig er skjalfest verklag um stýringu og samþykkt breytinga á umfangi og kostnaði vegna verkefna.

 

Skýrslur og upplýsingar

 

Betri samgöngur hafa frá upphafi lagt áherslu á umsjón og undirbúning áætlana í samræmi við alþjóðlega viðurkennda aðferðafræði byggðri á bestu þekkingu (e. best practice) og innleitt áhættugreiningu kostnaðar við frágang og framsetningu kostnaðar í lok hvers hönnunarstigs allra stærri verkefna. Þetta er nýlunda í verkefnum opinberra aðila. Í október 2022, tæpum tveimur árum eftir að Betri samgöngur innleiddu þetta verklag, kynntu Samtök iðnaðarins, Félag ráðgjafaverkfræðinga, Mannvirki félag verktaka og Framkvæmdasýsla nýja sýn á samræmda aðferð við gerð kostnaðaráætlana fyrir byggingar og almennar framkvæmdir sem finna má hér.

 

Þessi nýja sýn er sú sama og viðhöfð hefur verið í verkefnum sáttmálans eins og kemur fram í greinargerðinni. Aðferðafræðina má kynna sér á kostnaður.is, í greinargerðinni og á vef AACE (International Association for the Advancement of Cost Engineering), sem á rætur sínar að rekja allt aftur til ársins 1956.

 

Þessu til viðbótar hefur verið innleitt verklag í lok hvers hönnunarstigs þar sem farið er í gegnum byggingarhæfi verkefnisins. Þetta er ákveðið form áhættugreiningar þar sem markmiðið er að bera kennsl á þá þætti sem helst skapa áhættu (e. risk) við verklegar framkvæmdir. Aðferðin tekur á áhættu almennings sem á leið um og framhjá framkvæmdasvæðinu, framkvæmdaaðferð og framkvæmdaröð, helstu áhættuþáttum í framkvæmd sem geta orsakað aukinn kostnað og tíma og öryggi þeirra sem að framkvæmdinni vinna.

 

Markmiðið með þessari greiningu er að bera kennsl á viðkomandi atriði þannig að á næsta hönnunarstigi sé hægt að taka tillit til þeirra og gera viðeigandi ráðstafanir til að eyða eða lágmarka áhættunni. Þessi greining leiðir líka of í ljós ný tækifæri sem annars hefðu ekki verið með við áframhaldandi undirbúning. Þetta verklag er eðli málsins samkvæmt eitt form áhættugreiningar.

 

Samhliða uppfærslu samgöngusáttmálans voru gerður tillögur um umbætur í stjórnskipulagi hans og sérstaklega er gerð grein fyrir þeim í greinagerðinni.