Fréttir

Arnarnesvegur yfirlitsmynd 3

Verksamningur undirritaður um Arnarnesveg

Verksamningur hefur verið undirritaður við Loftorku og Suðurverk vegna þriðja áfanga Arnarnesvegar, milli Rjúpnavegar og Breiðholtsbrautar. Um er að ræða nýbygginu vegar á um 1,9 km kafla, auk þess sem byggð verða brúarmannvirki og undirgöng. Undirbúningur hefst strax í þessari viku og búist er við að framkvæmdir hefjist um miðjan ágúst.

 

Markmiðið með framkvæmdinni er að auka umferðaröryggi og stytta ferðatíma, auk þess að létta verulega á umferð um Vatnsendaveg. Í Kópavogi, austan Reykjanesbrautar, búa hátt í 15 þúsund manns. Vegkaflinn mun bæta til muna viðbragðstíma fyrir neyðaraðila í efri byggðum Kópavogs og Reykjavíkur.

 

Verkið er samstarfsverkefni Betri samgangna ohf., Vegagerðarinnar, Reykjavíkur, Kópavogs, Veitna og Mílu og er að mestu fjármagnað af Samgöngusáttmálanum.