Fréttir

betri_samgongur_adalfundur_2024-14

Vörður á veginum fram­undan

Það vill svo til að í sumar er komið að tímamótum í nokkrum af stóru fjárfestingum Samgöngusáttmálans. Frá gildistöku hans 2019 til áramóta hefur verið fjárfest í samgönguinnviðum fyrir alls 14,5 milljarða. Þar af eru 6,5 milljarðar í stofnvegum, 3,8 milljarðar í undirbúningi Borgarlínunnar, 2,7 milljarðar í hjóla-, og göngustígum og undirgöngum og 1,6 milljarðar og öryggis- og flæðisbætandi aðgerðum.

 

Stofnvegir
Hvað varðar fjárfestingar í stofnvegum þá má í fyrsta lagi nefna Sæbrautarstokkinn. Öðru hönnunarstigi af þremur er að ljúka og væntanleg er skýrsla um mat á umhverfisáhrifum. Í öðru lagi er fyrsta hönnunarstigi af þremur að ljúka vegna nýrra gatnamóta Reykjanesbrautar og Bústaðavegar. Í þriðja lagi hefur verið að skoðað hvort betra sé að setja Miklubraut í stokk eða göng. Þar er fyrsta hönnunarstigi af þremur að ljúka og í kjölfarið er reiknað með að hægt verði að velja hvor leiðin verður farin. Í fjórða lagi má einnig nefna að framkvæmdir við lokaáfanga Arnarnesvegar, sem tengir efri byggðir Kópavogs við Breiðholtsbraut, eru í fullum gangi og á að ljúka 2026.

 

Borgarlínan, hjóla- og göngustígar
Framkvæmdir vegna fyrstu lotu Borgarlínu eru að hefjast í tengslum við framkvæmdir Reykjavíkurborgar á Ártúnshöfða og við Hlemm og auk þess sem reiknað er með að fyllingar vegna Fossvogsbrúar verið boðnar út innan skamms. Vinna við nauðsynlegar breytingar á deiliskipulagi er í gangi og mun halda áfram samhliða kynningarferli fyrir mat á umhverfisáhrifum fyrstu lotu Borgarlínunnar. Auk þess er gert ráð fyrir að leggja um 3,3 km af nýjum hjóla- og göngustígum í sumar auk þess sem ný brú yfir Elliðaár við Grænugróf verði kláruð. Þá eru framkvæmdir hafnar á annarri göngu- og hjólabrú brú yfir Dimmu efst í Elliðaárdal.

 

Kyrrstaða rofin
Með gildistöku Samgöngusáttmálans rufu ríkið og sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu áralanga kyrrstöðu í samgöngumálum á svæðinu. Flest verkefni sáttmálans voru þá mjög stutt á veg komin í undirbúningi og því ekki hægt að fara í framkvæmdir strax. Þegar kemur að framkvæmdum er hagkvæmast að hugsa hægt og framkvæma hratt, þ.e.a.s. að gefa sér góðan tíma í undirbúning og láta svo framkvæmdirnar ganga hratt fyrir sig. Einn helsti áhættuþáttur í samgönguframkvæmdum er ónógur undirbúningur og ófyrirséð viðfangsefni sem oft þarf að bregðast við með kostnaðarsömum aðgerðum á framkvæmdatíma.

 

Það er vont og það venst ekki
Bílaeign og þar með umferð og umferðartafir aukast með auknum fjölda íbúa og ferðamanna. Rannsóknir sýna að við getum vanist flestu vondu, nema umferðartöfum. Það er því eðlilegt að okkur flestum finnist nóg um umferðartafir og að þær fari vaxandi. Ef tölurnar eru skoðaður þá sést að umferðartafir hér eru ekki jafn slæmar og margur heldur.

 

Samkvæmt tölum TomTom, sem er stærsta fyrirtæki heims á sviði staðsetningarbúnaðar í bílum, þá var Reykjavík í 281 sæti af 387 stærstu borgum heims þegar kemur að umferðartöfum. Samantekt verkfræðistofunnar EFLU, fyrir ráðstefnu Samtaka iðnaðarins um fjárfestingu í vegasamgöngum, sýnir að höfuðborgarsvæðið er á pari við borgir af svipaðri stærð á Norðurlöndum þegar kemur að umferðartöfum. Þær borgir sem hafa náð bestum árangri í að takmarka auknar umferðartafir hafa fjárfest í almenningssamgöngum.

 

Engar töfralausnir
Vaxandi borgir ná aðeins árangri í að draga úr umferðartöfum, eða vexti þeirra, með því að fjárfesta í almenningssamgöngum, göngu- og hjólastígum og með gjaldtöku af umferð í miðborgum til að fjármagna fjárfestingar. Það er því miður ekki til nein töfralausn á vaxandi umferðartöfum, heldur þarf til langs tíma að byggja upp betri fjölbreytta ferðamáta svo að þau sem það kjósa geti nýtt bílinn minna.

 

Grein eftir Davíð Þorláksson, framkvæmdastjóra Betri samgangna ohf., sem birtist á Vísir.is 8. maí 2024.