Fréttir

IMG_0459

Yfir 269 þúsund hjólaferðir á höfuðborgarsvæðinu í september

Hjólaumferð á höfuðborgarsvæðinu var mikil í september en alls skráðu fastir hjólateljarar rúmlega 269 þúsund hjólaferðir í mánuðinum. Það eru 15 þúsund fleiri ferðir en í fyrra, eða um 6% aukning.

 

Hjólaumferð hefur verið mikil undanfarna mánuði en í júní mældust rúmlega 350 þúsund hjólaferðir, sem er mesti fjöldi sem skráður hefur verið í júnímánuði (og í raun á einum mánuði) frá upphafi mælinga árið 2019. Í ágúst voru ferðirnar rúmlega 335 þúsund.

 

Uppbygging stofnhjólanets höfuðborgarsvæðisins er mikilvægur hluti Samgöngusáttmálans. Betri samgöngur vinna að því að fjölga og bæta göngu- og hjólastíga, skapa samfelldari leiðir milli sveitarfélaga og auka öryggi vegfarenda.

Framkvæmdir við stofnhjólanetið hafa verið umfangsmiklar á árinu. Í sumar var nýr hjólastígur meðfram Fjarðarhrauni í Hafnarfirði tekinn í notkun og framkvæmdum á nýjum göngu- og hjólastígum við Arnarneshæð í Garðabæ lauk í síðasta mánuði.

 

 

Við Sjávargrund í Garðabæ hafa einnig verið gerðir nýir stígar og ný hjólabrú yfir Arnarneslæk er á lokametrunum sem mun bæta tengingar fyrir hjólandi vegfarendur.
Við Ásahveri í Garðabæ hafa framkvæmdir staðið yfir síðan í sumar og lokafrágangur er í fullum gangi.

 

 

Í september hófust jafnframt nýjar framkvæmdir við Voginn í Kópavogi og á leiðinni frá Hamraborg að Ásbraut. Þessar framkvæmdir eru hluti af áframhaldandi uppbyggingu stofnhjólanetsins þar sem lögð er áhersla á öruggar og greiðar leiðir fyrir gangandi og hjólandi.

 

Frá því að framkvæmdir hófust á grundvelli Samgöngusáttmálans árið 2020 hafa verið byggðir tæpir 16 kílómetrar af hjólastígum og sambærileg lengd göngustíga, auk brúa og undirganga. Áfram er unnið að nýjum stígum og tengingum víðs vegar um höfuðborgarsvæðið og um 2,7 km langt stígakerfi er í uppbyggingu samhliða nýjum Arnarnesvegi sem mun verða tilbúið fyrir áramót.

 

 

Í nýrri ferðarvenjukönnun kemur fram að stór hluti íbúa á höfuðborgarsvæðinu hjólar, og þá er breytilegt hvort það sé allt árið um kring, hluta úr ári eða sjaldan. Þetta á við um 63% íbúa á höfuðborgarsvæðinu og því nýtist uppbygging á innviðum fyrir hjólandi meiri hluta íbúa höfuðborgarsvæðisins.